Gallerý Glóu auglýsir!!

Hæ,hæ!!
Jæja, þá er enn á ný kominn tími til að auglýsa komandi jól í Gallery Glóu.
Fyrirkomulagið í Galleryinu verður svipað og í fyrra þ.e.a.s ég ætla að vera við fyrir hádegi (með fyrirvara um að engin veikindi séu á heimilinu,7-9-13). Ef ég er að vinna upp í pantanir þá verð ég meira við jafnvel á kvöldin (þ.e.a.s þegar nær dregur jólum). Oftast er ég lengst fram á daginn að vinna á þriðjudögum!!
Ef ég er ekki við í galleryinu þá segi ég enn og aftur , endilega hringið í mig í síma 867-3772 eða 463-3252. Það er ýmislegt nýtt komið í skarti frá henni Röggu systur minni og svo er ég með sýnishorn af hulstri utan um gsm síma, handunnið úr leðri. Það er kona sem heitir Bergljót Rafnsdóttir sem býr það til. Einnig er ég með til sölu hekluð hulstur utan um gsm sem Kristín Ingólfsdóttir gerir .
Frá 1.september til 20.desember verður eins og undanfarin ár í gangi jólahappadrætti. Um leið og þið verslið þá setjið þið miða með nafninu ykkar á ofan í kassa og eigið þá möguleika á að fá vinning. Þrír vinnigar eru í boði, það er skart að verðmæti 1200 krónur, gifskross að verðmæti 2000 krónur og keramik að verðmæti 4000 krónur? Einnig verður aukavinningur, sem kemur á óvart !!
Ég vil benda fólki á
Heimasíðu Gallery-Glóu
sem er galleryglou.blogcentral.is
Þegar dregið var síðast þá hlutu eftirtaldir vinning :
Anna Magga Bjarnadóttir hlaut Skart.
Rósa í sæborg hlaut steinaugla.
Erla Friðbjörnsdóttir hlaut glerkertastjaka.
Aukavinning, jólaskraut , hlaut Anna Beta á Finnastöðum. Til hamingju vinningshafar!!!!!
En þar sem ég þarf að hafa tíma að vinna upp í pantanir þá hef ég ákveðið að síðasti pöntunardagur er 15.nóvember ,eftir það get ég ekki ábyrgst það að vera búin fyrir jól þó ég gæti reynt. Einhverja daga verð ég frá af því að ég verð á vinnustofu (gleri) í bænum.
Ég vil vekja athygli ykkar á því að kústa og steina þarf að sérpanta og þá er vissara að gera það í tíma því ég er smá tíma að vinna það
Ég vil að endingu þakka ykkur fyrir góðvilja ykkar til Gallerysinns og hvatningar orð til mín , það er mér mikils virði !!!!
Bestu kveðjur til ykkar
Eygló Kristjánsdóttir
´Því miður kann ég ekki að vinna með publisher inn á þessari síðu svo að myndirnar eru inn á öðrum stað hér til hliðar, merkt fréttabréf , ef þið viljið sjá þær!!!